Þegar talað er um forngrýtisskyldi er átt við viðáttumikila forna berggrunna sem eru leifar fellingafjalla í jarskorpunni. Þessar fellingar urðu til á forkambríum (fyrir 4500 milljón árum síðan) og á fornlífsöld (fyrir 543 milljón árum síðan). Vegna hreyfinga jarðskorpunnar í gegn um tíðina hafa þessar myndanir færst töluvert frá sínum myndunarstað. Útræn öfl, eins og vindur, vatn og jöklar hafa síðan unnið á þessum fjöllum þannig að eftir standa þessir forngrýtisskildir. |