Jarðskorpuflekar jarðarinnar færast til á yfriborðinu. Þessir flekar færast annað hvort með fráreki, hjáreki eða samreki. Fellingafjöll myndast þegar flekarnir rekast saman eða við samrek og þá ýtast þessir risastóru fjallgarðar upp. Þessi fjöll eða fellingafjöll geta teygt sig hundruð til þúsundir kílómetra á yfirborði jarðar. Þótt svo að jarðskorpuflekarnir hafi verið á stöðugri hreyfingu í gegn um jarðsöguna hefur meginmyndun fellingafjallanna staðið yfir á þremur tímabilum jarðsögunar. Þau tímabil nefnast Kaledóníufellingin, Varíska fellingin og Alpafellingin.